Lífið

Suður-kóresk poppstjarna í jakka frá Ella

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Einn af meðlimum suður-kóresku stúlknasveitarinnar 2NE1 klæðist hönnun eftir Ella Egilsson, betur þekktur sem AC Bananas, í myndbandi stúlknanna við lagið Come Back Home.

Um er að ræða svokallaðan „bomber“-jakka sem Elli hannaði fyrir japanska hönnunarfyrirtækið Ambush Design. 

Myndbandið er ágætlega vinsælt á YouTube en horft hefur verið á það tæplega þrjátíu milljón sinnum.

Skemmst er frá því að minnast þegar poppgoðið Pharrell klæddist svipuðum jakka eftir Ella á tónleikaferðalagi sínum Dear Girl Tour í lok september. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×