Lífið

Segir frá óléttri vinkonu sem sleikti bíla í Smáralind

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ósk Gunnarsdóttir og Sverrir Bergmann töluðu um það í morgunþætti FM957 í morgun hvernig æði getur gripið óléttar konur á meðgöngunni.

Sagði Ósk meðal annars frá vinkonu sinni sem borðaði mold eins og heyra má í meðfylgjandi hljóðbroti. Þá sagði hún frá annarri vinkonu sinni sem elskaði að sleikja rykuga bíla.

„Önnur vinkona mín sleikti ryk af bílum,“ segir Ósk og sagði að æðið hefði stundum gripið vinkonu sína þegar hún var í Smáralind og eina sem hún hugsaði þegar hún sá bílana var:

„Mmmm, rykugur bíll.“

Eins og heyra má í hljóðbrotinu fannst Sverri þetta stórfurðulegt.

„Þetta gerist bara. Óléttar konur fá skrýtin „cravings“,“ segir Ósk þá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×