Lífið

Blindfull í viðtali

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Anna Kendrick prýðir forsíðu tímaritsins Marie Claire en hún segist á Twitter hafa verið full þegar viðtali var tekið.

Í viðtalinu segir hún meðal annars frá því að fólki finnist hún ekki sæt.

„Ég heyri oftast: Er ég sá eini sem finnst Anna Kendrick ekki sæt? Og ég segi: Nei þú ert ekki sá eini. Allir strákarnir sem voru með mér í skóla eru sammála þér,“ segir hún. Hún furðar sig á velgengni sinni í kvikmyndabransanum. 

Þá segist hún oft dreyma um að hún geti lúbarið fólk.

„Ég er í alvörunni að sparka og kýla og sýna karate-takta og brjóta hluti. Sem ég gæti aldrei gert í raunveruleikanum því ég er svo lítil með spaghettíhandleggi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×