Lífið

Eignuðust dreng

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leelee og Adam.
Leelee og Adam. vísir/getty
Leikkonan Leelee Sobieski og eiginmaður hennar, fatahönnuðurinn Adam Kimmel, eru búin að eignast sitt annað barn saman samkvæmt heimildum tímaritsins Us Weekly.

Eignuðust þau dreng sem hefur hlotið nafnið Martin og kom hann í heiminn í ágúst.

Fregnir af þungun Leelee bárust í maí þegar hún frumsýndi óléttukúluna á tískusýningu Christian Dior í New York.

Fyrir eiga Leelee og Adam dótturina Louisanna Ray sem er fjögurra ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×