Lífið

Hefur örugglega sofið hjá yfir þúsund konum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Söngvarinn Mick Hucknall, sem er hvað þekktastur úr sveitinni Simply Red, var spurður að því í viðtali við Telegraph á dögunum hvort það væri satt að hann hefði sofið hjá yfir þúsund konum á ævinni.

„Það er örugglega rétt,“ segir söngvarinn og bætir við að honum hafi alltaf komið vel saman við konur.

„Ég hef aldrei neitað þessari tölu en aldrei haldið henni fram. Ég hef aldrei montað mig af þessu. Ég tel ekki. Ég hef ekki hugmynd en ég held að þetta sé rétt tala ef litið er yfir 25 ára tímabil,“ segir Mick. Hann sagði í viðtali við The Guardian árið 2010 að hann hefði sofið hjá þremur konum á dag, á hverjum degi á árunum 1985 til 1987.

„Rauðhærður maður er oftast ekki talinn kyntákn en þegar ég var frægur - Guð minn góður, það varð allt brjálað. Ég sagði aldrei nei. Þetta var allt sem ég vildi fá út úr því að vera poppstjarna. Ég lifði í draumi og eina eftirsjá mín er að ég særði nokkrar góðar stelpur,“ sagði hann þá.

Söngvarinn hefur verið í sambandi með Gabriella Wesberry síðustu ár og saman eiga þau sjö ára dótturina Romy True.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×