Lífið

John Oliver hakkar lottóið í sig

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
John Oliver fer áhugaverðar leiðir í fréttaskýringum sínum.
John Oliver fer áhugaverðar leiðir í fréttaskýringum sínum.
Skemmtikrafturinn John Oliver fer hörðum höndum um lottó í nýjasta þættinum sínum Last Week Tonight. Er óhætt að segja að upplýsingar sem fram koma í innslagi Oliver séu að sumu leyti sláandi.

Í innslaginu kemur meðal annars fram að tekjur af lottó í Bandaríkjunum nema árlega 68 milljörðum dollara eða jafnvirði rúmlega átta þúsund milljarða íslenskra króna. 44 ríki Bandaríkjanna leyfa lottó og eru auglýsingar áberandi í öllum miðlum.

Innslag Oliver er bæði fyndið og fræðandi og má sjá í heild sinni hér að neðan.


Tengdar fréttir

Oliver útskýrir þá ógn sem stafar af drónum

John Oliver segir drónaárásir eitt af því sem helst verði bendlað við stjórnartíð Baracks Obama í framtíðinni enda hafi þær stóraukist á undanförnum árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.