Lífið

Varð þunglynd eftir skilnaðinn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Russell og Katy á góðri stundu.
Russell og Katy á góðri stundu. vísir/getty
Söngkonan Katy Perry var nýlega í viðtali við The Project í Ástralíu og talaði um plötu sína Prism. Minntist hún sérstaklega á lagið By the Grace of God á plötunni.

„Síðan er það By the Grace of God - fyrsta lagið sem ég samdi fyrir plötuna, þegar ég var á öðrum stað, ég var á dekkri stað,“ segir Katy í viðtalinu en Perez Hilton segir frá því. Hún bætir við að þunglyndi hafi þjáð hana eftir að hún skildi við grínarann Russell Brand árið 2012.

„Stundum blindast maður af ýktum tilfinningum. Ég var klárlega að leita að svörum þegar ég skrifaði þetta lag og ég var þunglynd og döpur. Ég hugsaði hugsanir, en gerði aldrei neitt í því...sem betur fer,“ segir Katy og telur Perez að hún hafi þarna ýjað að því að hún hafi íhugað sjálfsmorð á þessu tímabili.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×