Lífið

Brúðarkjóll Madonnu seldist á tíu milljónir

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Sean og Madonna á brúðkaupsdaginn.
Sean og Madonna á brúðkaupsdaginn.
Föt söngkonunnar Madonnu voru boðin upp á góðgerðaruppboðinu Icons & Idols: Rock n' Roll í Beverly Hills um helgina.

Meðal þess sem var boðið upp var brúðarkjóll Madonnu sem hún klæddist þegar hún gekk að eiga leikarann Sean Penn árið 1985 en þau skildu árið 1989. Seldist kjóllinn á 81.250 dollara, rétt rúmar tíu milljónir króna.

Þá var kjóllinn sem Madonna klæddist í myndbandinu fyrir lagið Material Girl sleginn á 73.125 dollara, rúmar níu milljónir króna og kjóll sem hún klæddist í kvikmyndinni Evita fór á fimmtán þúsund dollara, tæpar tvær milljónir króna.

Mest fékkst fyrir jakkann sem söngkonan klæddist í kvikmyndinni Desperately Seeking Susan frá árinu 1985, eða 252 þúsund dollarar, rúm 31 milljón króna.

Dýr jakki.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×