Lífið

Mætti í skotapilsi á rauða dregilinn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Leikarinn og tónlistarmaðurinn David Hasselhoff, sem er hvað þekktastur fyrir að leika í sjónvarpsþáttunum Baywatch, mætti í skotapilsi á MTV Europe Music-verðlaunahátíðina í gærkvöldi en hátíðin var einmitt haldin í Skotlandi.

David, sem er 62ja ára, mætti á hátíðina með kærustu sinni til þriggja ára, Hayley Roberts, sem er 34 ára.

David veitti Ariana Grande verðlaun sem besta tónlistarkonan á hátíðinni og tók einnig þátt í grínatriði þar sem hann málaði sig bláan og hvítan í framan í anda kvikmyndarinnar Braveheart með Mel Gibson. Kallaði hann sig Bravehoff.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×