Lífið

Sjást í fyrsta sinn opinberlega saman í meira en ár

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, og eiginkona hans, Priscilla Chan, mættu saman á Breakthrough-verðlaunahátíðina sem haldin var í rannsóknarstöð NASA í Mountain View í Kaliforníu í gærkvöldi.

Það er frekar óvenjulegt að sjá Mark og Priscillu saman á mynd en þau hafa ekki sést saman opinberlega síðan í apríl í fyrra þegar myndir náðust af þeim í fríi á Havaí.

Mark og Priscilla gengu í það heilaga í maí árið 2012 eftir áralangt samband og tilkynntu fréttirnar að sjálfsögðu á Facebook.

Spéfuglinn Seth MacFarlane var kynnir hátíðarinnar í gærkvöldi en Mark og aðrir frumkvöðlar fjármagna herlegheitin. Á hátíðinni fá frumkvöðlar á sínu sviði peningaverðlaun fyrir gott starf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×