Ingvar Jónsson samdi við Start Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. nóvember 2014 10:15 Ingvar Jónsson yfirgefur Garðabæinn eftir fjögurra ára dvöl þar. vísir/daníel
Ingvar Jónsson, markvörður Stjörnunnar, er búinn að semja við norska úrvalsdeildarliðið Start til þriggja ára, en þetta fékk Vísir staðfest hjá leikmanninum sjálfum í morgun. Ingvar hefur verið eftirsóttur á Norðurlöndum eftir frammistöðu sína í Pepsi-deildinni undanfarin misseri, en hann hafnaði samningi frá sænska liðinu Åtvidaberg á dögunum. Þessi 25 ára gamli Njarðvíkingur hefur varið mark Stjörnunnar síðan 2011 og varð Íslandsmeistari með liðinu í sumar eftir ótrúlegan lokaleik gegn FH.Ingvar í leik gegn Inter í forkeppni Evrópudeildarinnar.vísir/afpHann fékk á sig 21 mark í 19 leikjum og hélt sex sinnum hreinu í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð og átti stóran þátt í að Garðabæjarliðið komst loks í Evrópukeppni, en í henni átti hann svo hvern stórleikinn á fætur öðrum. Ingvar bætti um betur í Pepsi-deildinni í ár og fékk á sig 20 mörk í 21 leik, hélt aftur sex sinnum hreinu og var eftir tímabilið kjörinn besti leikmaður deildarinnar af Pepsi-mörkunum og leikmönnum deildarinnar. Hjá Start hittir markvörðurinn fyrir tvo aðra Íslendinga; Ísfirðinginn Matthías Vilhjálmsson og Blikann Guðmund Kristjánsson, en báðir hafa spilað með liðinu undanfarin þrjú ár. Matthías og Guðmundur hafa verið í lykilhlutverki hjá liðinu, en með þá í fararbroddi komst liðið upp úr 1. deildinni árið 2012 og hefur nú haldið sæti sínu í úrvalsdeildinni í Noregi tvö ár í röð. Ingvar hefur verið viðloðinn landsliðshóp Íslands á þessu ári og þreytti frumraun sína með strákunum okkar fyrr í þessum mánuði þegar hann varði mark Íslands í seinni hálfleik í vináttuleik gegn Belgíu í Brussel.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Enski boltinn Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Fótbolti Fékk egg í andlitið á blaðamannafundi: „Skítuga eggjakakan þín“ Sport Apaummæli Mourinho kostuðu hann mikið Fótbolti „Getum gengið stoltar frá borði“ Handbolti Víkingar skipta um gír Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Rashford, Bónus deild karla og margt fleira Sport Sjóðandi heitur Curry gaf mömmu sinni treyjuna eftir leik Körfubolti Magnaður Sigvaldi sökkti Magdeburg Handbolti Aron og Bjarki Már gerðu sitt í París Handbolti Fleiri fréttir Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Sjá meira