Sport

Golden Retriever brýtur allar reglurnar í hundakeppni

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Þessi hundur er vel þjálfaður í að finna golfbolta
Þessi hundur er vel þjálfaður í að finna golfbolta vísir/getty
Í meðfylgjandi myndbandi má sjá hunda reyna fyrir sér í keppni sem fólst í því að standast freistingar og hlaupa til eigenda sinni. Einn golden retriever forgangsraðaði á annan hátt en hinir hundarnir.

Freistingarnar á keppnisbrautinni voru leikföng og matur og áttu hundarnir að sýna aga sinn og góða þjálfun með að taka skipanir eigandans fram yfir freistingarnar og hvatirnar.

Glæsilegi golden retriever hundurinn var tilbúinn að fylgja eigandanum, þegar hann var búinn að smakka á góðgætinu og leika sér örlítið.

Þetta skemmtilega myndaband frá þessari áhugaverðu keppni má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×