Lífið

Jay Z á afmæli í dag: Blue Ivy kom til landsins í morgun

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Blue Ivy, Jay Z og Beyoncé.
Blue Ivy, Jay Z og Beyoncé. vísir/getty
Ættingjar tónlistarmannsins Jay Z, þar á meðal dóttir hans og Beyoncé, Blue Ivy, komu til landsins í morgun samkvæmt heimildum Vísis.

Ku fjölskyldu Jay Z hafa verið flogið hingað á tveimur einkaþotum sem lentu á Reykjavíkurflugvelli nú fyrir stuttu.

Samkvæmt heimildum Vísis er fjölskylda Beyoncé ekki stödd á landinu en í henni er til dæmis systir hennar Solange Knowles. Frægt er orðið þegar Solange réðst á Jay Z í lyftu eftir Met-ballið fyrr á þessu ári.

Eins og fram hefur komið hafa Beyoncé og Jay Z dvalið á landinu í vikunni og fljúga aftur til Bandaríkjanna á laugardag. Heimildir Vísis herma að þau gisti í Reykjavík næstu tvær nætur og ætli að halda upp á afmæli Jay Z í kvöld.


Tengdar fréttir

Beyonce og Jay-Z í Bláa lóninu

Bandaríska ofurparið Beyoncé og Jay-Z eru eins og fram er komið á landinu. Ætla þau að halda upp á 45 ára afmæli rapparans sem hann fagnar þann 4. desember.

„Látið þau í friði!“

Fjöldi fólks biðlar til fjölmiðla og ljósmyndara að láta hjónin Beyoncé og Jay Z í friði.

Sjáðu Beyoncé og Jay Z við Skógafoss

Vísir getur staðfest að poppstjarnan Beyoncé og eiginmaður hennar Jay Z eru stödd hér á landi. Mynd náðist af þeim ganga úr svartri þyrlu við Skógafoss.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.