Lífið

Var í ástarsambandi með konu í fjögur ár

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Mel B.
Mel B. vísir/getty
Kryddpían Melanie Brown, betur þekkt sem Mel B, segir í viðtali við breska dagblaðið Guardian að hún hafi átt í alvarlegu ástarsambandi með konu sem átti börn sem gengu í sama skóla og elsta dóttir hennar, Phoenix.

„Tja, ég var í fjögurra ára sambandi með konu,“ segir Mel og bætir við að konan heiti Crista Parker. 

„En ég hef verið hamingjusamlega gift typpi í sjö ár. Ha ha! Stórkostlegur maður,“ segir Mel jafnframt. Hún gekk að eiga kvikmyndaframleiðandann Stephen Belafonte árið 2007.

„Ég er ekki feimin eða týpa sem held aftur af mér. Ef mig langar að prófa eitthvað þá geri ég það. Ég átti kærustu. Hvað með það?“ segir kryddpían.

Mel og Stephen eiga dóttur saman, Madison, þriggja ára. Þá á Mel einnig dótturina Angel, sjö ára, með Eddie Murphy og dótturina Phoenix, fimmtán ára, með fyrrverandi eiginmanni sínum, Jimmy Gulzar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×