Rikka bjó til gómsætar súkkulaðismákökur með saltri karamellufyllingu í þætti sínum Hátíðarréttir.
Saltaðar karamellusmákökur
20 stk
Smákökur:
250 g dökkt súkkulaði, saxað
3 msk smjör
2 egg
120 g sykur
1 tsk vanilludropar
60 g hveiti
1/4 tsk lyftiduft
Krem:
250 g smjör
500 g flórsykur
1/4 tsk salt
85 g tilbúin karamella
Smákökur:
Hitið ofninn í 200°C. Bræðið helminginn af súkkulaðinu ásamt smjörinu yfir vatnsbaði. Hrærið egg, sykur og vanilludropa saman þar til að blandan verður ljós og létt. Bætið hveiti, lyftidufti, bræddu súkkulaðiblöndunni og afganginn af súkkulaðinu saman við og hrærið saman. Mótið litlar kúlur með teskeið og raðið á smjörpappírsklædda ofnplötu og bakið í 8-10 mínútur. Kælið.
Krem:
Hrærið smjörið upp og bætið flórsykrinum smám saman út í ásamt saltinu. Hrærið karamellunni saman við og smyrjið kreminu á milli smákakanna.