Handbolti

Patti væri til í að spila í kvöld | Óvissa með Sigurberg

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Patrekur hefur fulla trú á sínu liði í kvöld.
Patrekur hefur fulla trú á sínu liði í kvöld. samsett mynd/tryggvi
"Ég er alveg furðurólegur hérna heima hjá mér með dóttur minni. Ég fer svo í smá hjólatúr áður en ég fer upp á Ásvelli," segir Patrekur Jóhannesson, þjálfari Hauka, fyrir oddaleikinn gegn ÍBV í kvöld.

Undirbúningur er hefðbundinn hjá Haukum. Þeir munu snæða lasagne upp á Ásvöllum síðar í dag og svo er myndbandsfundur þar sem línurnar verða lagðar fyrir kvöldið.

"Það er alltaf hugsað vel um okkur og við fáum gott að borða. Úlfar á Þrem frökkum eldar oft ofan í okkar af sinni alkunnu snilld og við getum ekki kvartað."

Besti leikmaður Hauka, stórskyttan Sigurbergir Sveinsson, meiddist í leiknum út í Eyjum á þriðjudag.

"Hann meiddist á hné og það kemur ekki í ljós fyrr en í kvöld hvernig staðan verður. Hann er ekki alveg góður en mun hita upp og reyna síðan það sem hann getur. Beggi er nagli og fórnar sér eins og möguleiki er," segir Patrekur.

Mikil óánægja var hjá Haukum með dómaraparið í síðasta leik - Gísla Hlyn Jóhannsson og Hafstein Ingibergsson - en Patrekur er löngu búinn að afgreiða það mál.

"Þeir gerðu mistök í þeim leik en þetta eru góðir dómarar. Hafa dæmt hérna í handboltanum í 20 ár og verið til fyrirmyndar. Ég er löngu búinn að fyrirgefa þeim þetta."

Stemningin fyrir oddaleiknum er mikil. Bæði hjá stuðningsmönnum Hauka og ÍBV. Patrekur segir þessa stemningu ekki fara fram hjá sér.

"Ég er að fara út að hjóla á eftir en ég er því miður ekki í nógu góðu formi til þess að spila. Mikið svakalega væri það gaman," segir Patrekur léttur og hlær við.

"Strákarnir eru frábærir og það er bullandi trú á því að við munum vinna leikinn. Mikið sjálfstraust í okkar liði og við höfum verið í úrslitaleikjum áður.

"Það er virkilega gaman að sjá þessa stemningu sem hefur myndast á leikjunum og toppnum verður örugglega náð í kvöld. HSÍ ætti að fá mig og Gunna (Magnússon, þjálfara ÍBV) á markaðsdeildina hjá sér því við kunnum að fylla húsin."


Tengdar fréttir

Það er allt kolgeggjað í Eyjum

"Þetta eru stærstu fólksflutningar frá Eyjum síðan 1973," segir Gunnar Magnússon, þjálfari ÍBV, en gríðarlegur fjöldi Eyjamanna mun fylgja handboltaliði félagsins upp á land í dag.

Sigurbergur með flest mörk í fyrstu fjórum leikjunum

Haukamaðurinn Sigurbergur Sveinsson er sá leikmaður sem hefur skorað flest mörk í fyrstu fjórum leikjunum í úrslitaeinvígi Hauka og ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn í Olís-deildar karla í handbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×