Lífið

Sjáið jólakort stjarnanna

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Stjörnurnar senda jólakort alveg eins og við almúginn og þau geta oft orðið ansi skrautleg.

Lífið á Vísi kíkti á nokkur hressandi jólakort sem eru annað hvort stútfull af húmor eða hugljúf og falleg.

Leikaraparið Joshua Jackson og Diane Kruger settu jólakortamyndina sína inná Instagram mánuði fyrir jól.
Ellen DeGeneres og Portia de Rossi gerðu grín að forsíðumynd Paper þar sem Kim Kardashian beraði bossa sinn.
Snooki bjó til kort með fullt af myndum af sér, eiginmanni sínum Jionni og börnunum þeirra tveimur; Lorenzo og Giovanna.
The Interview-stjörnurnar Seth Rogen og James Franco stilltu sér upp með jólasvein og huldu sitt allra heilagasta með jólasokkum.
Tori Spelling og Dean McDermott kusu að gera fallegt jólakort með börnum sínum eftir stormasamt ár.
Jólakort Playboy-kóngsins Hugh Hefner og eiginkonu hans Crystal Harris var frekar lágstemmt.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×