Lífið

Fylgdist með Pétri Jóhanni byggja úti­eld­hús

Stefán Árni Pálsson skrifar
Pétur Jóhann stendur í ströngu í framkvæmdum.
Pétur Jóhann stendur í ströngu í framkvæmdum.

Gulli Byggir fór vel yfir það í síðasta þætti af Gulla Byggi á Stöð 2 hvernig maður ber sig að þegar maður ætlar sér að reisa útieldhús.

Gulli sjálfur leyfir áhorfendum að sjá þegar hann sjálfur smíðar útieldhús við sumarbústað sinn.

En einnig er fylgst með grínistanum og leikaranum Pétri Jóhanni Sigfússyni og hans vegferð í sama verkefni, en við einbýlishús sitt í Garðabænum.

Pétur vissi ekki alveg hvað hann væri að fara út í og vatt verkefnið heldur betur upp á sig þegar leið á. Hér að neðan má sjá atriði úr síðasta þætti en lokaútkoman mun koma í ljós í næsta þætti.

Klippa: Fylgdist með Pétri Jóhanni byggja útieldhús





Fleiri fréttir

Sjá meira


×