Lífið

Þetta er myndin af Miley sem Instagram vill ekki að þið sjáið

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonan Miley Cyrus birti mynd af sér á Instagram á laugardaginn. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að Miley var ber að ofan á myndinni.

Gerði Miley þetta til að styrkja herferðina Free the Nipple en markmið herferðarinnar er að binda enda á upphafningu ofbeldis í fjölmiðlum og undirokun nektar.

Miley skrifaði við myndina að hún væri handviss um að myndin yrði tekin niður af samfélagsmiðlinum vegna nektarinnar og reyndist það rétt hjá söngkonunni. Hér fyrir ofan má hins vegar sjá myndina.

Stjörnurnar Lena Dunham, Rumer Willis og Liv Tyler eru meðal þeirra sem hafa einnig stutt herferðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×