Lífið

„Þetta boddí það er á lausu“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Myndband við lagið Mana þig með Hlyni Má Jónssyni, sem gengur undir listamannsnafninu Hlynur Icefit, hefur vakið gríðarlega athygli á YouTube.

Hlynur keppir í fitness og er farið yfir feril hans í greininni í myndbandinu.

Þá manar Hlynur einnig konur til að kyssa sig í laginu en þar fá fleygar setningar að hljóma eins og „Þetta boddí það er á lausu“ og „Ég er hér þessi kroppur“ á meðan myndir af Hlyni birtast þar sem hann spennir vöðvana.

Hlynur er einmitt á lausu og geta áhugasamar stúlkur haft samband við hann í gegnum Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×