Lífið

Kennslumyndband: Svona áttu að mála þig um áramótin

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Förðunarfræðingurinn Tara Brekkan Pétursdóttir er búin að setja nýtt myndband inn á YouTube-síðu sína þar sem hún sýnir áhorfendum hvernig hún farðar sig fyrir áramótin.

Tara notar nóg af glimmeri og glans og er förðunin tilvalin til að fagna nýju ári.

Tara útskrifaðist úr tísku- og ljósmyndaförðun frá Snyrtiakademíunni árið 2010 og hefur tekið að sér að farða fyrir ýmsa stóra viðburði, svo sem tískusýningar og Ungfrú Ísland. Þá tekur hún einnig að sér smærri verkefni og getur einnig gert einfaldar hárgreiðslur.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×