Lífið

Fór á skeljarnar um jólin

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Turtildúfurnar.
Turtildúfurnar. vísir/getty
Leikarinn Joe Manganiello bað sinnar heittelskuðu, Modern Family-stjörnunnar Sofiu Vergara, um jólin samkvæmt heimildum tímaritsins Us Weekly.

Joe og Sofia hafa verið saman í hálft ár en heimildarmaður Us Weekly segir að Joe hafi valið jólin til að fara á skeljarnar því hann hafi viljað gera það fyrir framan fjölskyldu hennar.

Fréttir af sambandi Joe og Sofiu voru birtar í júlí á þessu ári, aðeins tveimur mánuðum eftir að Sofia sleit trúlofun við Nick Loeb sem hún hafði deitað síðan árið 2010.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×