Haukar upp að hlið KR á toppnum | Myndir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. október 2014 20:47
Haukar eru áfram með fullt hús stiga í Dominos-deild karla í körfubolta eftir ellefu stiga sigur á nýliðum Fjölnis, 87-76, á Ásvöllum í kvöld. Haukarnir hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína eins og Íslandsmeistarar KR. Ernir Eyjólfsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á leiknum á Ásvöllum í kvöld og náði þessum myndum hér fyrir ofan. Haukarnir voru lengi í gang gegn frískum Fjölnismönnum en sýndu styrk sinn og breidd í seinni hálfleiknum og þá einkum í þriðja leikhlutanum sem Haukaliðið vann 28-14. Alex Francis var með 23 stig og 15 fráköst fyrr Hauka, Kári Jónsson skoraði 17 stig og Kristinn Marinósson var með 14 stig. Emil Barja lét sér nægja að skora 6 stig en var með 11 fráköst og 9 stoðsendingar. Daron Lee Sims var með 18 stig og 13 fráköst fyrir Fjölni og Arnþór Freyr Guðmundsson skoraði 14 stig. Fjölnismenn byrjuðu vel og komust í 18-11 í fyrsta leikhlutanum en eftir hann var staðan jöfn 20-20. Haukarnir voru síðan þremur stigum yfir í hálfleik 37-34 en þar munaði mikið um framlag Alex Francis sem var kominn með tvennu í hálfleik (14 stig og 11 fráköst). Haukarnir unnu þriðja leikhlutann 28-14 og voru þá komnir með góð tök á leiknum sem þeir héldu allt til leiksloka. Fjölnismenn löguðu aðeins stöðuna en ógnuðu aldrei sigrinum.Haukar-Fjölnir 87-76 (20-20, 17-14, 28-14, 22-28)Haukar: Alex Francis 23/15 fráköst/5 stolnir, Kári Jónsson 17, Kristinn Marinósson 14/6 fráköst, Helgi Björn Einarsson 8/5 stoðsendingar, Sigurður Þór Einarsson 7, Emil Barja 6/11 fráköst/9 stoðsendingar, Hjálmar Stefánsson 5/9 fráköst, Haukur Óskarsson 5, Kristján Leifur Sverrisson 2.Fjölnir: Daron Lee Sims 18/13 fráköst, Arnþór Freyr Guðmundsson 14/6 fráköst, Ólafur Torfason 14/9 fráköst, Róbert Sigurðsson 11, Valur Sigurðsson 10, Garðar Sveinbjörnsson 5/5 stolnir, Hreiðar Bjarki Vilhjálmsson 4.Emil Barja í leiknum í kvöld.Vísir/Ernir
Dominos-deild karla Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira