Lífið

Berar ekki bara bossann: Allsber inni í blaðinu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Það varð allt vitlaust í gær þegar forsíðumyndin á tímaritinu Paper var afhjúpuð en á henni berar raunveruleikastjarnan Kim Kardashian sinn fræga rass. 

Internetið fór á yfirsnúning og kepptist fólk um að hneykslast á forsíðunni eða gera grín að henni.

Í dag vindur málið aldeilis upp á sig þar sem Paper er búið að birta tvær myndir innan úr blaðinu.

Á annarri myndinni er Kim allsnakin og ofboðslega hress. Flestir stórir fréttamiðlar hafa átt við myndina þannig að brjóst og sköp Kim sjást ekki greinilega. Aðrir hafa hins vegar birt myndina eins og hún birtist í Paper. Á hinni myndinni inní blaðinu stendur Kim á hlið og sést glitta í geirvörtur á vinstra brjósti hennar.

Því var spáð í gær að forsíðumyndin á Paper myndi leggja internetið í rúst. Hvað gerist í dag?


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.