Lífið

Fingurinn á ET...vona ég

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Ellen Degeneres
Ellen Degeneres Vísirgetty
Þáttastjórnandinn Ellen Degeneres tók upp á því í vikunni að sýna gestum þáttarins óvenjuleg leikföng fyrir börn. Hugmyndina sagðist hún hafa fengið eftir að leikfangaverslunin Toys'r'us var gagnrýnd fyrir að hafa leikföng með karakterum þáttanna Breaking Bad í sölu, en fyrir þá sem ekki vita fjalla þeir þættir um menntaskólakennara sem fer að búa til og selja eiturlyfið crystal meth.

Uppátæki Ellenar vakti mikla lukku meðal áhorfenda en hún sýndi þeim meðal annars óviðeigandi Tarzan dúkku og eitthvað sem hún vonaði að væri fingurinn á ET. Sjón er sögu ríkari. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×