Lífið

Engir vinir af gagnstæðu kyni

Mary J. Blige stendur fast á sínu.
Mary J. Blige stendur fast á sínu.
Söngkonan Mary J. Blige og eiginmaður hennar eiga hvorugt vini af gagnstæðu kyni. 

Blige hefur verið gift Kendu Isaacs frá árinu 2003. Þau hafa gert með sér samkomulag þar sem hvorugt þeirra má eiga vini af gagnstæðu kyni vegna þess að hún trúir ekki að það "virki" í hjónabandi.

Í viðtali við tímaritið Stella sagði hún: "Bara konur fyrir mig og bara strákar fyrir hann. Það þýðir ekki þetta "Ó, þetta er kvenkyns vinur minn, eða ó, þetta er karlkyns vinur minn". Nei, ekki í mínu hjónabandi, ég hef aldrei séð slíkt ganga upp."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×