Lífið

Solange giftir sig í Kenzo

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Brúðhjónin voru alsæl og hvítklædd.
Brúðhjónin voru alsæl og hvítklædd. VÍSIR/GETTY
Tónlistarkonan Solange Knowles, 28 ára, gekk að eiga unnusta sinn tónlistarframleiðandann og leikstjórann Alan Ferguson, 51 árs, síðastliðinn sunnudag.



Brúðhjónin voru stórglæsileg þegar þau hjóluðu á hvítum reiðhjólum til athafnarinnar. Solange klæddist hvítum samfestingi með hettu og eiginmaður hennar hvítum jakkafötum.

Stóra systir Solange, Beyoncé Knowles, var að sjálfsögðu viðstödd ásamt eiginmanni sínum Jay-Z. 

Beyoncé birti nokkrar myndir úr brúðkaupsmyndatökunni á instagram aðgangi sínum þar sem má sjá brúðhjónin og brúðkaupsgesti. En athygli vekur að allir eru hvítklæddir.

Um brúðkaupsmyndatökuna sá ljósmyndarinn Rog Walker og kjóllinn sem Solange klæddist er hannaður af Humberto Leon fyrir Kenzo. Samfestingurinn sem Solange klæddist fyrr um daginn er hannaður af Stephane Rolland.

Solange hefur oft vakið athygli fyrir smekklegan klæðaburð sinn og á sjálfan brúðkaupsdaginn varð svo sannarlega engin breyting þar á.





 
A photo posted by Beyoncé (@beyonce) on Nov 11, 2014 at 7:27pm PST

 
A photo posted by Beyoncé (@beyonce) on Nov 11, 2014 at 7:21pm PST

 
A photo posted by Beyoncé (@beyonce) on Nov 11, 2014 at 7:27pm PST






Fleiri fréttir

Sjá meira


×