Harmageddon

Refsistefna í fíkniefnamálum endurskoðuð

Frosti Logason skrifar
Píratar hafa lagt fram þingsályktunartillögu um mótun heildstæðrar stefnu sem miðar að því að draga úr skaðlegum afleiðingum og hliðarverkunum vímuefnaneyslu. Stefnan er hugsuð til verndar neytendum efnanna, aðstandendum þeirra og samfélaginu í heild.

Ásamt þingmönnum Pírata eru þingmenn úr öllum flokkum skráðir flutningsmenn tillögunnar.

Samkvæmt vefsíðu Alþingis verður tillagan loksins á dagskrá þingsins í dag og taldi Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, ágætis líkur á því að hún kæmist til umræðu.

Við Spjölluðum við Helga Hrafn um þessa tillögu og stefnu Pírata í myndbandinu hér að ofan.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.