Dagskrá Iceland Airwaves var kynnt í dag en hana má nálgast hér. Upplýsingar um app hátíðarinnar er væntanlegt innan skamms.
Meðal þeirra sem koma fram á hátíðinni eru Flaming Lips, The Knife, The War on Drugs, Caribou, Ásgeir, Samaris, Unknown Mortal Orchestra, Future Islands, Anna Calvi, How To Dress Well, Sin Fang, Hozier, Sóley, FM Belfast, Jungle, Klangkarussell, La Femme, Mammút, Kelela, Radical Face, Mugison, Eskmo, Valdimar, East India Youth, Árstíðir, Jaakko Eino Kalevi, Prins Póló, Agent Fresco, Ballet School, Ezra Furman, Lay Low, Kwabs, Son Lux, Tomas Barfod, The Vintage Caravan og Vök.
Hátíðin er nú haldin í sextánda sinn, dagana 5. til 9. nóvember og verða listamennirnir sem koma fram alls 218 talsins, þar af 68 erlendar sveitir. Þeir munu munu koma fram á 12 tónleikastöðum í miðborginni.
Þess má geta að finnska hljómsveitin The Knife kemur fram á síðustu tónleikum sínum á Iceland Airwaves en sveitin mun hætta störfum eftir hátíðina.
Miðasala á hátíðina er í fullum gangi hér og fer hver að verða síðastur til þess að tryggja sér miða.

