Veiði

102 laxar á land á tveimur vöktum i Ytri Rangá

Karl Lúðvíksson skrifar
Mynd af www.lax-a.is
Það hefur aðeins verið veitt á flugu í Ytri Rangá í sumar en það breyttist 14. september þegar maðkveiði var leyfð samhliða flugunni.

Líklega hafa þó fáar flugurnar verið bleittar enda eru þeir veiðimenn sem sækja í þessa daga svo til eingöngu að veiða a maðk.  Það er ekkert skrítið að mikil ásókn sé í fyrstu dagana þar sem maðkveiði er leyfð í ánni því veiðin er alveg ótrúleg fyrstu dagana.  Sem dæmi um þetta veiddust 102 laxar á fyrstu tveimur vöktunum og er veiðin vel dreifð um ánna.  Uppselt er í Ytri Rangá til 24. september en eftir það er eitthvað af lausum leyfum svo þeir sem eru búnir að fara í gegnum þetta heldur rólega sumar án þess að eiga lax til hátíðarbrigða í frystikistunni eiga góða von á að bjarga því þarna.  Haustveiðin í Ytri- og Eystri Rangá er oft drjúg en veitt er í báðum ánum vel inní október.  Laus leyfi í Ytri má finna á www.veida.is

Lax er ennþá að ganga i Ytri Rangá og eins er þetta sá árstími þar sem sjóbirtingurinn fer að láta sjá sig í meiri mæli en vinsamleg tilmæli hafa verið til veiðimanna um að sleppa honum enda er verið að vinna í að stækka þann stofn í ánni.  






×