Lífið

Rappandi eiginkona slær í gegn á netinu

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má sjá Ranger rappandi.
Hér má sjá Ranger rappandi.
Hjón frá Kanada hafa slegið í gegn eftir að maðurinn birti myndband af konu sinni að rappa lag eftir hina goðsagnakenndu rappsveit Salt N‘ Pepa. Myndbandið, sem er fjörutíu sekúndur að lengd, hefur farið víða á netinu og hefur verið horft á það tæplega sex milljón sinnum á Youtube.

Hér má sjá myndbandið:



Margir erlendir fjölmiðlar hafa fjallað um myndbandið. Á vef Washington Post er umfjöllun um það og þeirri spurningu velt upp af hverju það sló svona rækilega í gegn á netinu. Rapp eiginkonunnar, sem heitir Chelsea Ranger, þykir ekki betra en ýmislegt annað og lagið ekki flókið. 

En eiginmaðurinn, Paolo Salmao, heldur að myndbandið hafi slegið í gegn því það sýnir hversu góðir vinir þau hjónin séu. „Þarna sér fólk par sem nýtur þess að vera með hvort öðru. Ég held að það sé aðalatriðið,“ segir hann í samtali við blaðamann Washington Post. Salmao titlaði myndbandið „Sætasti gangster sem ég þekki“. 

Vinsældir myndbandsins komu honum virkilega á óvart. Hann var nýbúinn að birta tvær myndir af ketti þeirra hjóna á vefnum Reddit sem fengu nokkuð sterk viðbrögð, sexíu athugasemdir. Hann ákvað því að prófa að birta þetta myndband og óraði ekki fyrir því hvað myndi gerast. 

„Maður varð svolítið hræddur. Maður veit í raun ekkert hvað mun gerast eða hvert myndbandið fer,“ segir Salmao. Hann segir að rapparinn Ranger hafi ekkert breyst við þessa frægð: „Hún er rosalega jarðbundin,“ útskýrir eiginmaðurinn.

Parið veltir nú fyrir sér að birta fleiri myndbönd af svona hversdagslegum en jákvæðum stundum. Margir sem hafa séð myndbandið vilja sjá meira af þeim og liggja hjónin nú undir feldi.

Hér að neðan má svo sjá rappdrottningarnar Salt N' Pepa rappa lagið sem Ranger rappaði í bílnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×