Lífið

Missti meydóminn tólf ára

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Raunveruleikastjarnan Mama June, sem heitir réttu nafni Shannon, veitti Entertainment Tonight viðtal í vikunni eftir að þáttur hennar, Here Comes Honey Boo Boo, var tekinn af dagskrá. Ástæðan var ástarsamband Shannon og dæmda barnaníðingsins Mark McDaniel.

Í viðtalinu segir Shannon meðal annars frá því þegar hún missti meydóminn aðeins tólf ára gömul.

„Ég hafði ekki hugmynd um hvað þetta var og hvernig átti að gera þetta...og síðan vatt þetta uppá sig,“ segir Shannon. Hún eignaðist fyrsta barn sitt, dótturina Önnu Cardwell, þegar hún var fjórtán ára.

„Ég deitaði menn sem voru á þrítugs- og fertugsaldri. Mamma mín vissi af því. Ég laug aðeins og sagði að þeir væru 21, 22ja ára. Þegar ég og Mark byrjuðum saman var ég tvítug og hann 38 ára. Það er átján ára aldursmunur,“ bætir hún við.

Fyrrnefnd Anna Cardwell heldur því fram að Mark hafi misnotað hana þegar hún var átta ára. Anna segir að móðir sín sé byrjuð aftur með Mark og var Shannon spurð út í af hverju hún myndi hleypa honum nálægt börnunum sínum í viðtalinu við Entertainment Tonight.

„Maður heldur ekki að einhver sem maður hefur verið með í fimm ár geti gert eitthvað svona. Ég vissi ekkert um þetta fyrr en fyrir um tveimur og hálfu ári síðan,“ segir Shannon.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×