Lífið

Opnunargestum komið rækilega á óvart

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Lindex opnaði nýja verslun í Kringlunni um helgina og af því tilefni var blásið til opnunarteitis frá hádegi á laugardag.

Íslenski dansflokkurinn og fimleikafólk kom viðskiptavinum á óvart á göngum Kringlunnar með svokallað "flash mob" sem endaði fyrir framan verslun Lindex. Atriðið vakti gríðarlega lukku en fullt var út úr dyrum í versluninni nánast allan daginn.

Meðal gesta var tískubloggarinn Elísabet Gunnarsdóttir en hún var fengin til að vera með sérstaka slá í versluninni með flíkum sem hún mælir með. Hún gefur síðan fimmtíu þúsund króna inneign í versluninni í kvöld ásamt meðbloggurum sínum á vefsíðunni Trendnet.

Mæðgurnar Elísabet Gunnarsdóttir og Alba.
Brynjar Dagur, sigurvegari Ísland Got Talent.
Förðunarbloggarinn Erna Hrund frá Trendnet.
Tinna, Sylvía, Heba og Ragga.
Ebba Særún.
Íris Tanja og Ásdís.
Arna Jónsdóttir ásamt Bravo-genginu.
Steinunn Kara, Alba & Sigurlaug Eva.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×