Lífið

"Ég er mjög þakklátur og ánægður“

Tvær stuttmyndir eftir Guðmund Arnar Guðmundsson hlutu verðlaun um helgina.

Ártún hlaut aðalverðlaun Brest, evrópsku stuttmyndahátíðarinnar í Frakklandi, og Hvalfjörður, sem er einnig eftir Guðmund, hlaut sérstök dómaraverðlaun á ALCIE-kvikmyndahátíðinni í Madríd á Spáni.

Guðmundur var viðstaddur verðlaunaafhendinguna í Frakklandi í boði aðstandenda hátíðarinnar. „Ég er mjög þakklátur og ánægður,“ segir Guðmundur sem hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir myndir sínar.

Nýlega vann Ártún Gullna skjöldinn á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Chicago og Hvalfjörður er tilnefnd til evrópsku kvikmyndaverðlaunanna sem verða veitt í desember.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×