Veiði

120 laxar komnir úr Korpu og um 100 úr Brynjudalsá

Karl Lúðvíksson skrifar
Bárðarfoss í Brynjudalsá
Bárðarfoss í Brynjudalsá
Í öldudal veiðitalna úr laxveiðiánum gleymist oft og iðullega að horfa á litlu árnar sem eru minna þekktar en geta oft gefið fína veiði.

Litlar, nettar, 2-3 stanga ár eru um allt land og þeirra þekktust er auðvitað Laxá á Ásum sem við höfum sagt fréttir en það má heldur ekki gleyma góðum fréttum úr hinum litlu ánum.  Ein af þeim er Úlfarsá eða Korpa en veiðin í henni í sumar hefur verið alveg ágæt og ekki mikil, ef einhver, niðursveifla í þeirri á.  Hún er komin í 120 laxa sem þykir bara ágætt á rétt 6 vikum og aðeins á tvær stangir.  Nokkuð af laxi er í ánni og sérstaklega í Stíflu þar sem hann safnast oft mikið saman en vandinn er að ná honum.  Fiskurinn verður oft mjög styggur í veðri eins og er spáð í vikunni og þá gefa morgnarnir og kvöldin iðullega best.  Það er stundum bara best að vera ekkert að veiða ánna frá 10:30 til 19:00, það hefur oft reynst best að ná morgninum og hvíla hana svo bara nógu vel.

Brynjudalsá hefur að sama skapi verið ágæt í sumar en hún fer að detta í 100 laxa.  Hún væri líklega með mun hærri veiðitölu ef ekki væri fyrir að maðkveiði hefur verið bönnuð.  Fyrir þá sem veiða á flugu er besti tíminn framundan í Brynjudalsá því nú þegar er töluvert af laxi komið upp fyrir Efri Foss en þar er mjög gaman að eiga við hann á nettar flugustangir.  Eins er nokkur sjóbirtingur kominn á efri svæðin líka og hann getur oft verið rígvænn.






×