Lífið

Segist vera á einhverfurófi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Jerry Seinfeld.
Jerry Seinfeld. vísir/getty
Grínistinn Jerry Seinfeld segist vera á einhverfurófi í nýlegu samtali við fréttamanninn Brian Williams hjá NBC Nightly News. 

„Ég held, á breiðum skala, að ég sé á rófinu,“ segir Jerry. Aðspurður af hverju hann haldi það stendur ekki á svörunum.

„Þú veist, ég beini aldrei athyglinni á rétta hluti. Venjuleg samskipti eru mjög erfið. Ég er mjög bókstaflegur. Þegar fólk talar við mig og notar orðatiltæki skil ég stundum ekki hvað það er að segja,“ segir spéfuglinn. Hann lítur ekki á þetta sem fötlun.

„Ég er ekki óstarfhæfur. Ég lít á þetta sem annars konar hugarfar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×