Lífið

Gaf kærastanum sogblett

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Háværar sögusagnir hafa verið uppi að undanförnu þess efnis að fyrirsætan Cara Delevingne sé byrjuð með leikaranum Jack O'Connell

Cara deilir mynd af hálsi Jacks á Instagram-síðu sinni en á myndinni sést að leikarinn er með sogblett. Er því talið víst að þau séu opinberlega orðin par.

Jack er ekkert sérstaklega frægur en það gæti breyst á jóladag þegar myndin Unbroken verður frumsýnd. Jack leikur aðalhlutverkið í myndinni sem leikstýrt er af Angelinu Jolie.

Love bites ❤️ #fittybum

A photo posted by Cara Delevingne (@caradelevingne) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×