Lífið

Nýtt líf Völu Grand: "Ég ætla að verða markaðsgúrú“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vala elskar bekkina á sólbaðsstofunni. Segir þá þá bestu á landinu.
Vala elskar bekkina á sólbaðsstofunni. Segir þá þá bestu á landinu. vísir/ernir
„Mér var boðin þessi vinna út af því að ég er svo góð í að markaðssetja. Ég hef áhuga á þessu. Mér finnst gaman að hjálpa nýjum fyrirtækjum að byggja sig upp. Það er eitthvað við þetta starf. Ég er að fíla mig. Mér finnst svo gaman að taka að mér ný verkefni,“ segir athafnakonan Vala Grand. Hún er orðin markaðsstjóri hjá sólbaðsstofunni Sól Stúdíó í Kópavogi sem opnaði fyrir rétt rúmlega mánuði.

„Mér finnst gaman að prófa eitthvað nýtt en stundum fæ ég leið. Þá læt ég mig fara. Ég held ég verði hér í smá stund enda erum við með flottustu bekki landsins. Það skemmtilega við þá er að við erum með snúru í bekkjunum sem þú getur tengt við síma eða iPad og þá geturðu hlustað á þína eigin tónlist. Þá þarftu ekki að hlusta á einhverja ógeðslega leiðinlega tónlist í útvarpinu,“ segir Vala og bætir við að það sé einnig wifi-tenging á stofunni.

Völu dreymir um að verða markaðsgúrú.
En er eitthvað vit í að reka sólbaðsstofu í dag?

„Það er mikill bisness í þessu. Mér brá hvað eru margir sem koma í ljós,“ segir Vala sem hefur sinnt markaðsstjórastarfinu í viku. „Sumum líður bara eins og þeir sé naktir ef þeir eru hvítir og vilja þess vegna vera brúnir. Það er nóg að gera hér og fyrirtækið er alltaf að stækka og stækka. Ég held að ég sé rétta manneskjan til að koma þessu fyrirtæki á framfæri,“ bætir Vala við og er strax komin með markaðsherferð fyrir jólatörnina.

„Ég segi við alla núna að markaðsherferð Sól Stúdíó fyrir jólin sé: Fáðu lit fyrir jólin. Eða: Ekki vera næpa um jólin. Komdu hingað og vertu brún/n og sæt/ur um jólin,“ segir hún hlæjandi.

Það er ekki að ástæðulausu að Vala tók að sér starfið enda dreymir hana um að fara í háskólanám í markaðsfræðum.

„Ég er alltaf á leiðinni í skóla í eitthvað sem tengist markaðsfræðum. Þetta starf er upphitun fyrir námið. Mig langaði að læra aðeins á vinnumarkaðinum og taka síðan stöðupróf í háskólanum og fara í markaðsfræði. Ég ætla að verða markaðsgúrú. Þetta er bara byrjunin,“ segir hún.

Vala og Gunnar Már.
Gunnar Már Levísson rekur Sól Stúdíó og er hæstánægður með að fá Völu í vinnu. Svo ánægður að hann og Vala ætla að bjóða öllum fimmtán prósent afslátt af ljósatímum í nóvember. En það er bara byrjunin því innan skamms ætla þau að fara í heljarinnar markaðsátak.

„Við ætlum að finna Sól Stúdíó stelpuna, annað hvort um jólin eða eftir jól. Hún verður í öllum auglýsingum hjá okkur,“ segir Vala. En hvernig á þessi stúlka að vera?

„Þessi stelpa á að vera sjálfstæð og full af sjálfstrausti. Stór, lítil, feit eða mjó – það skiptir ekki máli. Hún á bara að vera manneskja sem selur. Og auðvitað fær hún eitthvað í staðinn – allavega ljósatíma,“ segir Vala.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×