Veiði

Auknar göngur í Ytri Rangá

Karl Lúðvíksson skrifar
96 sm lax sem veiddist í Djúpós í Ytri Rangá
96 sm lax sem veiddist í Djúpós í Ytri Rangá Mynd: West Ranga
Eftir heldur hæga opnun eru veiðimenn farnir að verða varir við auknar göngur í Ytri Rangá sem venjulega segir að það styttist í mokveiðina sem þekkja þar á bæ.

Við heyrðum í Jóhannesi Hinrikssyni veiðiverði á laugardagskvöldið og þá voru veiðimenn við Borg varir við stóra göngu sem var á hraðri siglingu upp ánna.  Þeir veiðimenn sem voru þá við veiðar á Borg, sem er ekki lengur inní aðalsvæði Ytri Rangár, settu í töluvert af laxi og náðust nokkrir á land.  Seinna um kvöldið, rétt fyrir síðustu mínútur veiðitímans, urðu veiðimenn sem voru þá veið veiðistaðinn Klöpp sem er neðan Ægissíðufossa varir við mikið af laxi á þeim stað sem tók ekkert sem fyrir hann var lagt.  Það er yfirleitt gott merki þess að fiskurinn sé að flýta sér upp ánna og á klárlega eftir að glæða efri svæðin í Ytri Rangá meira lífi.

Það er ennþá stórlax að ganga í ánna og eins er smálaxinn farinn að sýna sig í meira mæli og þrátt fyrir umtal um að 1 árs laxinn komi verr haldinn úr sjó þetta árið er ekki að sjá það í aflanum í ánni því aðeins tveir örlxar hafa verið færðir til bókar og 1 árs laxinn sem er að veiðast er yfirleitt 4-6 pund og í góðum holdum.  Um daginn veiddust tveir stórlaxar í ánni, annar 96 sm í Djúpós sem sjá má á meðfylgjandi mynd og annar 92 sm á Tjarnarbreiðu.  Fleiri viðlíka laxar hafa sést í ánni svo það má vonandi reikna með fleiri svona tröllum á land í sumar.






×