Veiði

Með um 40 bleikjur á morgunvakt í Þingvallavatni

Karl Lúðvíksson skrifar
Jedarinn með tvær fallegar bleikjur úr afla gærdagsins
Jedarinn með tvær fallegar bleikjur úr afla gærdagsins Mynd: KL
Það var mikið fjölmenni veiðimanna og útivistarfólks við Þingvallavatn í gær enda veðurblíðan með eindæmum góð.

Það var ekki hlaupið að því að fá bílastæði við vatnið, hvorki við veiðistaði eða annars staðar, svo mikill var fjöldinn við vatnið í gær.  Frá morgni og til um klukkan þrjú var logn og hiti um 20 gráður sem sólarunnendur og veiðimenn kunni vel að meta, meira að segja bleikjan í vatninu virtist komast í gang því veiðin var ágæt hjá flestum.  Einn veiðimaður stóð þó klárlega uppúr þegar hann gekk að bílastæðinu frá veiðistaðnum sínum klyfjaður fallegum 2-4 punda bleikjum sem fyllti tvo netpoka.  Þessi knái veiðimaður heitir Jedarinn Kongasanan og er orðinn vel þekktur fyrir góð aflabrögð við vatnið.  Samtals náði hann um 40 bleikjum á land fyrir klukkan 10 um morguninn sem allar tóku svarta púpu með kúluhaus.

Það var mikið líf á öllum veiðistöðum í gær og veiðimenn stóðu á öllum lausum töngum og stundum voru 4-5 stangir allar með fisk á í einu.  Bleikjan var líka að taka þurrflugu framan af degi en mikil vök var víða og oft vænar bleikjur á ferðinni sem syntu alveg upp við hraða land.  






×