Lífið

Conan O'Brien sagði frá láti Robin Williams í gær

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Conan O'Brien í gær.
Conan O'Brien í gær.
Þáttarstjórnandinn Conan O'Brien sagði frá láti leikarans Robin Williams í þætti sínum í gærkvöldi. Þátturinn er tekinn upp nokkrum klukkustundum áður en hann fer í loftið og voru fréttir af láti Williams farnar að spyrjast út þegar tökum þáttarins nýlokið.

Í erlendum fjölmiðlum kemur fram að þáttarstjórnendur hafi ákveðið að taka upp nýtt innslag vegna fréttanna af láti leikarans. Gestur Conan var gamanleikarinn Will Arnett og ræddu hann og Conan um Robin Williams og sögðu hann hafa verið einstakan mann.

Hér að neðan má sjá innlsagið, þegar Conan O'Brien tilkynnir gestum sínum þessar sorgarfréttir. Auðvelt er að greina viðbrögð áhorfenda í sal, sem var greinilega brugðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.