Lífið

Myndir: Gott stuð á Secret Solstice í gær

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Tónlistarhátíðin Secret Solstice hélt áfram í gær og var að sögn gesta góð stemning og mikið stuð á hátíðinni. Fjölmargir lögðu leið sína í Laugardalinn og voru þar á meðal stúlkurnar í Reykjavíkurdætrum sem skemmtu á hátíðinni og Ragnhildur, eða Ragga, Gísladóttir ásamt fjölskyldu sinni. Dóttir hennar, Disa, steig á stokk í gærkvöldi en hátíðin náði hápunkti sínum með hljómsveitinni Massive Attack.

Síðasti dagur hátíðarinnar er í dag og er rapparinn Schoolboy Q meðal flytjenda.  

Stefán Karlsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins náði þessum stemningsmyndum í gær. Fleiri myndir en þær sem birtast hér að neðan má skoða í myndaalbúminu efst í fréttinni.

Ragnhildur Gísladóttir, tónlistarkona, ásamt manni sínum Birki Kristinssyni og barni.
.

Þetta er í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin.Mynd/Stefán Karlsson
.

Reykjavíkurdætur nutu hátíðarinnar eftir sinn flutning í gær.
.

.

.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.