Lífið

Kom einn á Golden Globe

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Hjartaknúsarinn Chris Pine mætti einn á Golden Globe-hátíðina í Los Angeles í gær og var ansi reffilegur í smóking.

Fyrirsætan Íris Björk Jóhannesdóttir var hvergi sjáanleg en mikið hefur verið skrifað um meint ástarsamband þeirra síðan þau sáust láta vel að hvort öðru í París fyrir stuttu.

Heimildir Vísis herma að parið hafi eytt áramótunum saman á Kosta Ríka en hvorki Chris né Íris hafa viljað tjá sig um sambandið.

Chris afhenti verðlaun fyrir bestu teiknimynd á hátíðinni ásamt leikkonunni Emmu Watson.

Sjarmör par exelans.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.