Veiði

100 laxar komnir á land á svæði II og III í Blöndu

Karl Lúðvíksson skrifar
Blanda er fyrst til að fara yfir 1000 laxa í sumar og áin greinilega í góðum málum því það er ennþá lax að ganga.

Laxinn er farinn að ganga hratt upp á efri svæðin og veiðin þar hefur tekið góðan kipp síðustu daga.  Nú þegar hafa verið skráðir um 50 laxar í hvora veiðibók á svæði II og III og veiðin þar búin að vera virkilega góð síðustu daga.  Nokkrir stórlaxar hafa tekið flugur veiðimanna en engin þeirra hefur náðst á land en þegar talað er um stórlax í Blöndu eru þeir yfirleitt 18 pund eða meira.  Mjög gott vatn er í Blöndu, lítill jökullitur sem gerir ánna mjög veiðilega og það má þess vegna segja með góðu fínir dagar séu framundan á efri svæðunum í ánni.

Þeir sem hafa kannað efri svæðin á svæði IV hafa einnig orðið varir við mikið bleikju í sumum hyljunum en lítið hefur verið kastað á hana því þegar lax liggur víða í hyljum á svæðinu er meira leitað af laxi en bleikju.  Getspakir menn sem veitt hafa ánna í áratugi og þekkja sveiflurnar í henni segja að áin stefni í að ná 1600-1700 löxum að öllu óbreyttu en ef hún fer seint í yfirfall gæti þessi tala orðið hærri.






×