Lífið

Svona var afmæli Jay Z í fyrra

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Stjörnuhjónin Beyoncé og Jay Z ku vera hér á landi til að halda uppá 45 ára afmæli Jay Z en hann á afmæli á fimmtudaginn.

Afmælisfögnuður Jay Z í fyrra var frekar lágstemmdur en á afmælisdeginum fóru þau hjónin út að borða á Café Gratitude í Vestur-Hollywood. Þau ákváðu að byrja að borða vegan daginn áður en Jay Z átti afmæli og því var matseðillinn svona: salat, linsubaunir og taco-skeljar. Í eftirrétt fengu þau sér súkkulaðitrufflur og með þessu drukku þau safa úr eplum, rauðrófum, sítrónu og engiferi.

Þá héldu þau einnig litla afmælisveislu fyrir nánustu fjölskyldumeðlimi og vini í New York og birti Beyoncé myndir úr veislunni á Tumblr-síðu sinni.

Óljóst er hvernig afmælisfögnuður Jay Z verður á Íslandi en samkvæmt frétt Nútímans ætla vinir parsins að fjölmenna til landsins til að fagna með honum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.