Lífið

Justin Timberlake algjörlega heillaður af íslenskum áhorfendum

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
"Ég elska ykkur," sagði söngvarinn í gær.
"Ég elska ykkur," sagði söngvarinn í gær. Vísir/Andri Marinó
Samkvæmt heimildum Vísis sagði Justin Timberlake við samstarfsfólk sitt og vini sem ferðuðust með honum að íslenskir áhorfendur, sem mættu á tónleika hans í gær, væru einhverjir þeir bestu sem hann hafði séð. Hann var algjörlega heillaður af íslenskum áhorfendum.

Áhorfendur tóku ótrúlega vel undir með söngvaranum og endaði hann með því að leggja hljóðnema sinn á sviðið og lét áhorfendur sjá um sönginn í laginu Mirrors, eins og sjá má í myndbandinu frá Yahoo. Allt kvöldið dönsuðu áhorfendur og sungu með Timberlake af miklum krafti. 

Eins og lesa má í dóm gagnrýnanda Vísis voru tónleikarnir frábærir.

Í frétt frá Yahoo Live Nation, sem sendu tónleikana út um allan heim, segir: „Íslendingar kunnu alla textana hans Timberlake.“ Í fréttinni er talað um hversu vel íslensku áhorfendurnir kunnu lög söngvarans og var sérstaklega talað um mikla þátttöku áhorfenda í lögunum Summer Love og Mirrors.

Timberlake talaði mikið um Ísland á tónleikunum. „Ég verð að segja ykkur að Ísland er einn fallegasti staður í heimi. Og hér drekkur fólk, ójá,“ sagði Timberlake á milli laga, tiltölulega snemma á tónleikunum. „Ef einhver hefði sagt mér þegar ég var átta ára að læra gítargripin að einn daginn yrði ég á Íslandi að spila fyrir ykkur...,“ sagði Justin undir lok tónleikanna.

„Maður semur lögin í litlu herbergi og veit aldrei hver mun hlusta á þau. Frá hjartarótum þakka ég ykkur. Ég elska ykkur af öllu hjarta.“

Ef marka má heimildir Vísis var söngvarinn svo sannarlega að meina það sem hann sagði á sviðinu í gær. Enda voru tónleikagestir almennt mjög ánægðir með þessar erlendu stórstjörnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.