Lífið

Toy Story 4 frumsýnd árið 2017

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Leikföngin í Toy Story slógu fyrst í gegn árið 1995.
Leikföngin í Toy Story slógu fyrst í gegn árið 1995.
Aðdáendur Toy Story geta fagnað því ákveðið hefur verið að framleiða fjórðu myndina um leikföngin ævintýraþyrstu. Samkvæmt The Verge verður myndin frumsýnd 16. júní árið 2017. Hún verður sú fjórða í seríunni en hinar þrjár slógu í gegn um allan heim. 

Fyrsta Toy Story myndin kom út árið 1995. Leikstjóri þeirrar myndar, John Lasseter, sest aftur í leikstjórastólinn fyrir fjórðu myndina. Síðasta Toy Story mynd kom út árið 2010 en þá var það Lee Unkrich, sem leikstýrði meðal annars Finding Nemo og Monsters Inc., sem leikstýrði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×