Lífið

Emilíana Torrini til Istanbúl

Freyr Bjarnason skrifar
Emilíana Torrini er á leið í tveggja vikna tónleikaferð.
Emilíana Torrini er á leið í tveggja vikna tónleikaferð. Fréttablaðið/Arnþór
Tónlistarkonan Emilíana Torrini fer í tónleikaferð um Evrópu í næstu viku.

Ferðalagið stendur yfir í tvær vikur og fyrsti viðkomustaðurinn verður Istanbúl í Tyrklandi.

Lokatónleikarnir verða í París 24. nóvember en í millitíðinni spilar hún meðal annars í London, Búdapest og Zürich.

Eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum sendi Emilíana nýlega frá sér lagið Nightfall (Pale Blue) sem hún samdi með tónlistarmanninum Kid Koala en það hljómar í kvikmyndinni Men, Women and Children.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×