Lífið

Festist í lyftu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hinn bandaríski Johnny Quinn, sem keppir í bobsleðabruni á Ólympíuleikunum í Sotsjí, festist í lyftu á hóteli sínu á mánudaginn.

Johnny birti mynd af þessari óskemmtilegu reynslu á Twitter en náði sem betur fer að komast út hratt og örugglega.

Johnny komst líka í fréttirnar í síðustu viku þegar hann birti mynd af gjörónýtri baðherbergishurð á Twitter-síðu sinni. Hann festist inni á baðherberginu á hótelherbergi sínu og var ekki með síma á sér til að hringja á hjálp. Hann notaði því kraftana og braut sér leið út úr hremmingunum.

Baðherbergishurðin.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.