Lífið

Barnalán hjá Járnmanninum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Leikarinn Robert Downey Jr. og eiginkona hans, Susan, eignuðust dóttur fyrir stuttu samkvæmt heimildum tímaritsins People.

Fyrir á parið soninn Exton Elias sem er tveggja og hálfs árs. Robert, sem er hvað þekktastur í síðari tíð fyrir að leika Iron Man eða Járnmanninn, á einnig soninn Indio, 21 árs, úr fyrra hjónabandi.

Robert og Susan kynntust árið 2003 og gengu í það heilaga tveimur árum síðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×